Year: 2017

Nemendaserían 2017

Hætta / Athugið – Viðvörunarskilti Ívars Björnssonar

[Því miður er þessi grein aðeins birt á ensku] With tourism growing at an acute rate, Icelandic agencies and landowners are now working to minimize accidents and preventable risks by building up the national travel infrastructure needed to support the large influx of incoming travellers. Hætta / Athugið contributes valuably to this effort with customizable icons and a thoughtful system that will soon be tested at popular tourist attractions in collaboration with the Environmental Agency of Iceland. Hætta / Athugið by Ívar Björnsson is a customizable signage system that uses humour and charismatic graphic language to address the serious issue of tourist safety in Iceland. There is a current lack of consistent and effective signage across the country and tourists often may not realize the bodily risks encountered while traveling the countryside—whether intense winds, unpredictable beaches, or glaciers. How would you describe your project? The increase of accidents in Iceland following the tourist boom is a national concern. Current Icelandic warning and danger signs are not sufficiently effective or systematized. My objectives were to create …

Sunna Örlygs

One Year and 10 Days

Myndbandið One Year and 10 Days var tekið upp í Berserkjahrauni á Snæfellsnesi. Hraunið varð fyrir valinu þar sem svæðið líktist því einskismannslandi sem Sunna sá fyrir sér við vinnu meistaraverkefnis síns frá ArtEZ, Grand Illusions of a Great Fashion Escape. Myndbandið er að hennar sögn sjónræn útgáfa á rannsókn hennar á því sem gerist þegar fatahönnuður einangrar sig algjörlega frá daglegu umhverfi sínu, áhrifum og áliti annarra. One Year and Ten Days from Magnus Andersen on Vimeo.

HA06 er komið út!

Sjötta tölublað HA hefur nú litið dagsins ljós og mun án efa birta upp í huga alls áhugafólks um íslenska hönnun og arkitektúr í helsta skammdeginu. Tímaritið telur rúmlega 140 blaðsíður af áhugaverðu efni enda af nógu að taka þegar kemur að íslenskri hönnunarsenu. Meðal efnis er viðtal við Jón Helga Hólmgeirsson yfirhönnuð hjá Genki Instruments sem er skreytt myndaþætti sem unninn var í samvinnu við Studio Fræ. Þá fá lesendur innsýn í hugmyndavinnuna að baki útskriftarverkefnis Sunnu Örlygs fatahönnuðar í meistaranámi hennar við ArtEZ, sem myndað var af Magnúsi Andersen ljósmyndara. Paul Bennett, yfirhönnunarstjóri hjá IDEO, sem fékk hálfan salinn til að fella tár á síðustu DesignTalks með persónulegri frásögn sinni, skrifar um upplifun sína af landi og þjóð í opnu bréfi til Íslendinga. Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, arkitektar og eigendur Kurt og Pí, sem hlutu nýverið Hönnunarverðlaun Íslands fyrir endurhönnun Marshall-hússins segja frá því hvernig arkitónísk hugsjón mótaði hugmyndina að breyttu hlutverki hússins á öllum stigum. Grímur Sæmundsen forstjóri og stofnandi Bláa lónsins, sem hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í …

HA Nr. 06 er komið út

Sjötta tölublað HA hefur nú litið dagsins ljós og mun án efa gleðja áhugafólk um íslenska hönnun og arkitektúr. Tímaritið telur að þessu sinni rúmlega 140 blaðsíður af áhugaverðu efni enda er af nógu að taka þegar kemur að íslenskri hönnunarsenu. Forsíðuviðtalið er við Jón Helga Hólmgeirsson, yfirhönnuð hjá Genki Instruments, en með því fylgir myndaþáttur sem var unninn í samvinnu við Studio Fræ. Þá veitir Sunna Örlygs fatahönnuður lesendum innsýn í ferlið að baki útskriftarverkefni hennar í meistaranámi við ArtEZ, sem myndað var af Magnúsi Andersen ljósmyndara. Paul Bennett, yfirhönnunarstjóri hjá IDEO, sem fékk hálfan salinn til að fella tár á síðustu DesignTalks með persónulegri frásögn sinni, skrifar um upplifun sína af landi og þjóð í opnu bréfi til Íslendinga. Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, arkitektar og eigendur Kurt og Pí, sem hlutu nýverið Hönnunarverðlaun Íslands fyrir endurhönnun Marshall-hússins, segja frá því hvernig arkitónísk hugsjón mótaði hugmyndina að breyttu hlutverki hússins á öllum stigum. Grímur Sæmundsen forstjóri og stofnandi Bláa lónsins, sem hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun, segir frá því …

Hlemmur

Biðskýlið við Hlemm hefur verið umdeilt frá því það var byggt árið 1978. Draumurinn um að þar yrði líflegt og bjart markaðstorg snérist fljótt upp í andhverfu sína og Hlemmur varð einn þekktasti samkomustaður pönkara og utangarðsfólks í miðbæ Reykjavíkur. Hið sérstæða hús, sem teiknað var af Gunnari Hanssyni, gekk nýverið í endurnýjun lífdaga og hýsir nú matarmarkaðinn Hlemm – Mathöll. Bjarki Vigfússon rekur hér áhugaverða sögu Hlemmtorgs. Veitingasala við Hlemmtorg hófst fyrir meira en 100 árum Árið 1904 reis hús við Hverfisgötu 125 sem kallað var Norðurpóllinn en í því var frá upphafi veitingasala fyrir ferðalanga sem þar áttu leið um. Svæðið í kringum Hlemm markaði þá nokkurn veginn borgarmörk Reykjavíkur í austri en byggðin var þá enn nær öll vestan Hlemms. Ferðalangar sem komu til borgarinnar úr austri, eða voru að yfirgefa borgina, fóru því um Hlemm og aðalleiðin austur í Þvottalaugarnar lá þarna um. Hlemmtorg hefur því verið áningarstaður og tengipunktur í samgöngukerfi Reykjavíkur allt frá 19. öld. Sagt er að Hlemmur hafi á þessum tíma einnig verið vinsæll áfangastaður ungra elskenda …

Hugleiðing um landslag

Landslag er marglaga hugtak og fyrirbæri sem hefur verið viðfangsefni margra ólíkra faggreina og fræðasviða í gegnum tíðina. Ef litið er yfir sviðið kemur í ljós að landslag á sér einkum tvær hliðar sem hafa fengið mismikla athygli – þessar tvær hliðar eru annars vegar landslag sem áþreifanlegt og sýnilegt fyrirbæri og hins vegar landslag sem óáþreifanleg og ósýnileg samtvinnun þeirrar veru sem skynjar og þess fyrirbæris sem skynjað er. Hér á eftir fer hugleiðing mín um samspil þessara hliða og það hvaða máli landslag skiptir okkur sem fyrirbæri og hugtak, hvort sem er í daglegu lífi okkar og athöfnum eða fag- og fræðigreinum eins og hönnun og arkitektúr. Eins og í fyrri hugleiðingu minni um fegurð sem birtist á heimasíðu HA 1 langar mig að byrja á að rýna í það hvernig við notum orðið landslag í daglegu máli. Það sem mörgum dettur eflaust fyrst í hug er að nota orðið um upplifun af hefðbundnu landslagi eins og því sem börn á grunnskólaaldri myndu teikna: fjöllum, dölum, túnum, vötnum, ám, himni, hafi. Margir …

KALDA SS18 lína

Fetar nýjar slóðir

Það eru komin tvö ár síðan íslenska síðan íslenska fatamerkið KALDA breyttist í skóframleiðanda. Við ræddum við aðalhönnuðinn, Katrínu Öldu Rafnsdóttur. Hvers vegna skór? Ég hef alltaf verið hugfangin af skóm. Eftir að hafa hannað fatalínu vildi ég taka mér frí frá því og einbeita mér að einum vöruflokki og skóhönnun lá vel við. Hver er munurinn á því að hanna skó og föt? Það er mikill tími og vinna á bak við skóhönnun. Tæknilega séð er hún flóknari og tímafrekari en fatahönnun. Hvernig skór passa á þægilegan hátt, hvernig þeir eru upp byggðir og hvernig þeir endast — allt þetta þarf að hugsa öðruvísit en þegar maður hannar föt. Lýstu hönnunarferlinu þínu. Þegar ég hóf skóvinnuna langaði mig til að byrja upp á nýtt. Þótt skórnir séu augljóslega rökrétt framhald af KALDA línunni er þetta ný vara sem ég byrjaði með frá grunni. Ég leitaði á æskuslóðirnar og valdi hráefni úr umhverfinu þar sem ég aldist upp. Ég hugsaði mikið um hugmyndir mínar um fegurð þegar ég var að hanna skóna. Ég er mjög …

Nemendaserían 2017 — Blikur eftir Dagnýju Björg Stefánsdóttur

[Þessi grein er því miður aðeins birt á ensku.] Blikur by Dagný Björg Stefánsdóttir is an investigation into ways we can sensorily relate to the weather. Poetic and meditative, the project transmits quiet strength as it melds contemporary design with old traditions and methods as a way to reconnect us with our bodies and the environment. These four minimal artefacts are a direct comment upon our dependence on technology and its corresponding loss of traditional knowledge for reading nature. As beautifully observed by Thomas Pausz, the power and beauty of Blikur lies in its reactionary nature: “Change is happening and we are learning to listen again. Blikur participates in this new consciousness.” Hello Dagný! How would you describe your project? Blikur is a series of four objects made out of materials that change in dialogue with different atmospheric conditions to reveal patterns of the weather with movement rather than numbers. The objects are sensors measuring atmospheric pressure, temperature, humidity levels and wind direction. They encourage the viewer to learn how to read into nature—into its …

Nemendaserían 2017 / Rætt við Thomas Pausz prófessor við LHÍ

[Þessi grein er því miður aðeins birt á ensku.] Through the Looking Glass is a series of spotlights showcasing new design talent. The series offers an in-depth look into six exceptional graduation projects from the Iceland Academy of the Arts, along with an introductory interview with Thomas Pausz—a professor of product design at the Iceland Academy of the Arts and the curator of the 2017 BA degree show TEIKN / GESTURES. In the interview below, Thomas helps us gain a greater perspective on this year’s graduating students and insight into what young designers are making today. Through the series, we hope to gauge the upcoming creative pulse in Iceland and offer a window into how a new generation of creatives is responding to times of environmental anxiety, political instability and redefined values. — As the curator, how would you characterize this year’s graduating projects? I was very inspired by the humour with which the students are addressing difficult topics. We live in confusing times, with a disturbing political and ecological crisis, but this generation is …

HA#5

Stuggaðu við skilningarvitunum í sumar

Fimmta tölublað HA er komið í verslanir – stuggaðu við skilningarvitunum og hafðu gott lesefni við höndina í sumarfríinu. Eins og vorútgáfu HA sæmir þá er fjallað um nokkur verkefni sem kynnt voru á síðastliðnum HönnunarMars. Þar á meðal er viðtal við hönnunarteymið And Anti Matter, sem sýndi hvað umgjörð sýningar getur skipt miklu máli. Einnig er fjallað um verkefni Sigga Odds þar sem rúnir ráða ríkjum og nýja fatalínu Anítu Hirlekar en þau vöktu bæði verðskuldaða athygli á HönnunarMars. Skipulagsmál borgarinngar eru skoðuð út frá nýjum sjónarhorni, kannað hvort menntaverkefnið Biophilia hafi stuðlað að nýsköpun í skólum og hrist upp í hefðbundnum kennsluaðferðum á Norðurlöndum. Jafnframt er að finna viðtal við eigendur Tulipop en fyrirtækið er að hefja innrás á bandarískan markað og kynnti nýlega visthverfa viðbót við vörulínur sínar. Þá er rætt við Búa Bjarmar vöruhönnuð sem fjallar um skítlegan áhrifavald sinn og skartgripahönnuðurinn Guðbjörg í Aurum deilir úr viskubrunni sínum. Síðast en ekki síst er að finna í ritinu tvo hugvíkkandi myndaþætti sem sýna okkur fegurðina í hversdagsleikanum og litríkar samsetningar af íslenskri hönnun. HA fæst í verslunum Eymundsson um allt land og helstu hönnunarverslunum á höfuðborgarsvæðinu; Epal, Aurum, Hrím, Geysir, …