Arkitektúr, Fatahönnun, Grafísk Hönnun, Innanhússarkitektúr og húsgagnahönnun, Landslagsarkitektúr, Leirlist og keramíkhönnun, Textílhönnun, Upplifunar- & sýningarhönnun, Vöru- & iðnhönnun
Leave a comment

HA 09 er komið út!

Í þessu níunda tölublaði, sem er í glænýju útliti eftir hönnunarteymið StudioStudio, er meðal annars skyggnst inn í heim hönnunar, matar og hnattvæðingar í gegnum verkefnið Banana Story eftir Johönnu Seelemann og Björn Steinar Blumenstein, Bergur Finnbogason hjá CCP og Space Popular færa lesendur inn í heim sýndar- og viðbætts veruleika og framtíðarfræðingurinn Helga Jósepsdóttir segir frá því hvernig hægt sé að hanna framtíðina.

Gunnar Vilhjálmsson og Kalapi Gajjar-Bordawekar hjá letursmiðjunni Universal Thirst segja frá indverskri og arabískri týpógrafíu, fata- og textílhönnuðurinn Helga Lára Halldórsdóttir útskýrir hvernig það sem hún kallar „rýmisgreind vandræðaleikans“ varð að fatalínu. Þá deilir Philip Fimmano tísku- og lífsstílssérfræðingur hugleiðingum sínum, leirlistakonan og hönnuðurinn Kristín Sigfríður Garðarsdóttir segir frá ferlinu bakvið nýafstaðna einkasýningu sína í Hafnarborg og arkitektinn Rafael Pinho skrifar um krosslímt timbur (KLT) og möguleika í íslenskri skógrækt.

Þetta og margt margt fleira í HA 09 – tryggðu þér eintak!

Viltu fá HA heim að dyrum? Skráðu þig í áskrift hér.

@hadesignmag
#hadesignmag

Skildu eftir svar