Farfuglar
—
Ragna Ragnarsdóttir iðnhönnuður
Ég vissi alltaf að ég myndi vinna með höndunum. Ég var að hugsa um myndlist en ég var of mikill pappakassi til þess, svo að ég fór að vinna við trésmíðar. Með tímanum fékk ég sífellt meiri áhuga á því hvernig hlutir virka. Mig langaði að gera meira en að smíða eftir hugmyndum annarra. Núna blandast þetta allt saman í verkum mínum. Ég hafði verið að leita að rétta skólanum og fann loks einn sem mér leist vel á, Ensci Les Atelier í París. Í skólanum eru frábær verkstæði til að vinna í málma, tré og plast og þar er fólk opið fyrir öllu í hönnun. Þar var fólk að smíða bíla og vinna í hugbúnaði hlið við hlið. Það átti vel við mig því ég vil hafa margs konar hönnun í kringum mig og stærra umhverfi til að finna mína leið. En í umsóknarferlinu varð maður að senda verkefnamöppu og fara í viðtal á frönsku. Og ég talaði ekki orð í henni. Einhvern veginn tókst mér samt að kjafta mig inn. Ég fluttist …