Álit / pistlar
Leave a comment

HA Nr. 06 er komið út

Sjötta tölublað HA hefur nú litið dagsins ljós og mun án efa gleðja áhugafólk um íslenska hönnun og arkitektúr. Tímaritið telur að þessu sinni rúmlega 140 blaðsíður af áhugaverðu efni enda er af nógu að taka þegar kemur að íslenskri hönnunarsenu.

Forsíðuviðtalið er við Jón Helga Hólmgeirsson, yfirhönnuð hjá Genki Instruments, en með því fylgir myndaþáttur sem var unninn í samvinnu við Studio Fræ. Þá veitir Sunna Örlygs fatahönnuður lesendum innsýn í ferlið að baki útskriftarverkefni hennar í meistaranámi við ArtEZ, sem myndað var af Magnúsi Andersen ljósmyndara.

Paul Bennett, yfirhönnunarstjóri hjá IDEO, sem fékk hálfan salinn til að fella tár á síðustu DesignTalks með persónulegri frásögn sinni, skrifar um upplifun sína af landi og þjóð í opnu bréfi til Íslendinga.

Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, arkitektar og eigendur Kurt og Pí, sem hlutu nýverið Hönnunarverðlaun Íslands fyrir endurhönnun Marshall-hússins, segja frá því hvernig arkitónísk hugsjón mótaði hugmyndina að breyttu hlutverki hússins á öllum stigum. Grímur Sæmundsen forstjóri og stofnandi Bláa lónsins, sem hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun, segir frá því hvernig samstarf við framúrskarandi hönnuði hefur átt stóran þátt í velgengni fyrirtækisins. Að auki er umfjöllun um þau framúrskarandi hönnunarverkefni sem hlutu tilnefningu til verðlaunanna; Reiti: Tools for collaboration, Orlofshús BHM eftir PKdM, einkenni listahátíðarinnar Cycle eftir Döðlur og Saxhól eftir Landslag.

Texta- og hugmyndasmiðurinn Bragi Valdimar Skúlason fer yfir sögu íslenska orðsins hönnun og við skyggnumst inn í heim Loja Höskuldssonar hönnuðar sem hefur vakið athygli fyrir Instagram-myndir af verkum Sigvalda Thordarsonar arkitekts.

Hönnuðirnir Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir hjá Nordic angan kynna íslenskan ilmbanka sem þær eru að vinna að og Helga Mogensen skartgripahönnuður segir frá áskorunum sem felast í því að vinna úr rekaviði. Brynhildur Pálsdóttir vöruhönnuður, sem stendur að verkefninu Leit að postulíni ásamt Ólöfu Erlu Bjarnadóttur keramiker og Snæbirni Guðmundssyni jarðfræðingi, varpar ljósi á þá töfra sem felast í því að sjá íslenskt grjót umbreytast í steyptan hlut og loks lýsir hönnunarteymið Studio Trippin, þær Valdís Steinarsdóttir og Kristín Karlsdóttir, því hvernig þær breyta áður ónýttri hliðarafurð í áhugaverða hönnunarvöru.

Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, heimspekingur og lektor við Listaháskóla Íslands, skrifar hugleiðingu um landslag og hvaða máli það skiptir okkur sem fyrirbæri og hugtak. Einnig er sagt frá nýjum útsýnispöllum eftir Landmótun, teiknistofu landslagsarkitekta, við Brimketil á Reykjanesi en þeir eru dæmi um vel heppnað landslagsverkefni sem gerir gestum kleift að upplifa brimbrotið á öruggari hátt en áður.

Auður Ösp Guðmundsdóttir svarar spurningum um meistaranám sitt við elstu leikmynda- og búningahönnunardeild í heimi auk þess sem við sýnum svipmyndir af nokkrum af þeim fjölmörgu áhugaverðu hönnunarverkefnum sem móta íslensku hönnunarsenuna í dag; Örn Duvald, Önnu Guðmundsdóttur í Malmö upcycling service, textílhönnuðinum Ýrúrarí, gullsmíðaverkstæðinu Raus Reykjavík, samstarfi Epal við hina margverðlaunuðu Margrethe Odgaard, Studio Holt, Gagn, Rögnu Bjarna og HAF studio. Þá fjöllum við um hönnunarverslanirnar Akkúrat og Ypsilon sem hafa slegið í gegn hjá hönnunarunnendum á öllum aldri og sýnum frá nýrri verslun S/K/E/K/K sem áætlað er að opni í Gerðarsafni á næstu mánuðum.

Við bendum líka á áhugaverð viðtöl og greinar á vefsíðu okkar, www.hadesignmag.is, meðal annars grein Bjarka Vigfússonar um Hlemmtorg, viðtal við Katrínu Öldu Rafnsdóttur hjá KALDA og greinasafnið Through the looking glass sem fjallar um verk nýútskrifaðra hönnuða frá Listaháskóla Íslands.

Þú getur nálgast HA tölublað 06 hér á vefverslun okkar eða fengið HA06 með 10% afslætti með því að gerast áskrifandi HA hér.

Skildu eftir svar